Finnsk-íslenska
viðskiptaráðið.
Ráðið eflir og viðheldur viðskiptatengslum milli Finnlands og Íslands, ásamt því að efla tengsl á sviðum menntunar, menningar, viðskipta og stjórnmála. Það er tengslanet fyrirtækja, stofnana og einstaklinga og er vettvangur fyrir samskipti við hið opinbera.
Markmið ráðsins er að efla og viðhalda traustum tengslum á sviði viðskipta, menningar og menntunar milli Finnlands og Íslands.
Finnsk-íslenska viðskiptaráðið skipuleggur fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni landanna tveggja og stendur vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna gagnvart finnskum og íslenskum yfirvöldum. Með viðburðahaldi skapar viðskiptaráðið góðan vettvang fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að styrkja tengslanet sitt og viðskiptamöguleika.
Viltu fylgjast með?
Skráðu þig hér að neðan ef þú vilt fá reglulegar upplýsingar um starf, fundi og viðburði Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins.
Finnsk-íslenska
viðskiptaráðið
Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35, 5. hæð
105 Reykjavík