Kanada býður upp á spennandi tækifæri í Kanada
Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið í samstarfi við Sendiráð Kanada á Íslandi og Arion banka, heldur alþjóðlega ráðstefnu þar sem rætt verður um Kanada sem spennandi tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki.
Canada will be the 2nd best country in the G20 for doing business throughout the next five years (2026-2030) (Economist Intelligence Unit, October 2025) and among the G7 countries, Canada ranks 3rd with respect to the ease of starting a business. (GEM Consortium, Global Entrepreneurship monitor – 2024/2025 Global Report, 2025)
Dr. Mélanie Raymond, Chief Economist and Director General of International Economic Relations, Global Affairs Canada er afar virtur hagfræðingur í Kanada og mun fjalla um efnahagshorfur í Kanada og hvernig hún sér Kanada sem spennandi tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki þar sem boðið er upp á hagkvæmt rekstrarumhverfi og hagfeld skilyrði til að stofna fyrirtæki.
Hlynur Guðjónsson, fyrrum sendiherra Íslands í Kanada veltir fyrir sér opnunum og tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki í fortíð og framtíð. Skúli Mogensen, raðfrumkvöðull deilir sinni reynslu af því að búa í Kanada og byggja þar upp fyrirtæki. Fundarstjóri verður Eliza Reid, rithöfundur og stjórnarkona í Kanadísk-íslenska viðskiptaráðinu.
Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunar hjá Kerecis og formaður stjórnar Kanadísk-íslenska viðskiptaráðsins opnar ráðstefnuna og Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi flytur lokaorð.
Eftir að formlegri dagskrá lýkur gefst gestum tækifæri að ræða við fyrirlesara, efla tengslanetið og njóta léttra veitinga.
📅 Dagsetning: 17. mars
⏰ Tímasetning: 15:30–17:30 GMT (Reykjavík)
📍Staðsetning: Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar og skráning hér: https://viskiptarslands.createsend1.com/t/t-e-wjjtjtd-l-p/
{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið (CAIS)

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík