Veffundur um Orku og sjávartengda tækni og tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í Kanada.
Sendiráð Íslands í Kanada, Íslandsstofa í samstarfi við Kandísk-íslenska viðskiptaráðið og Pedal & Shift, halda veffund um tækifæri á sviði orku- og sjávartækni í Atlantshafsfylkjum Kanada.
Fundinum er ætlað að veita góða innsýn í markaðinn. Farið verður yfir væntanleg verkefni og dregin upp skýr mynd af hvað hafa þarf í huga fyrir markaðssókn á svæðið. Fundurinn verður á ensku. Information in English: https://viskiptarslands.createsend1.com/t/t-e-wjyldlk-l-d/
Dagskrá
Opnunarávarp, Guðmundur Óskarsson, Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið
Yfirlit yfir markaðinn og stóra myndin
- Ian Froude & Megan Dobbin, Pedal & Shift
- Kynning á Atlantshafsfylkjum Kanada
- Verkefni framundan í orku- og sjávartækni
Tækifæri í orku- og sjávartækni
- Samlegðaráhrif milli Íslands og Atlantshafsfylkja Kanada
- Endurnýjaneg orku (á landi og hafi)
- Sjávartækni og umhverfistækni
- Markaðsaðstæður í Atlantshafsfylkjum Kanada
Umhverfi stjórnvalda
- Nýjar áherslur stjórnvalda og fylkjanna
- Aukin uppbygging í varnarmálum og innviðum
Samstarf við Pedal & Shift og þjónusta til íslenskra fyrirtækja
Lokaorð, Per Unheim, sendiráði Íslands í Ottawa
Fundarhlekkur verður sendur á skráða þátttakendur fyrir fundinn.
Vinsamlega skráið ykkur á fundinn hér: https://share-eu1.hsforms.com/1LwV0MiglR8qYL3Xuy6zFkg2eythf

