Íslandsstofa og Sendiráð Íslands í Ottawa standa fyrir kynningafund á vefnum um tækifæri á kanadíska markaðnum fyrir íslensk fyrirtæki í dag, þann 26. nóvember kl. 15:00-16:15. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Grow Trade Consulting.
Á fundinum verður farið yfi
r helstu atvinnugreinar sem tengjast útflutningsáherslum Íslands, þar á meðal endurnýjanlega orku, nýsköpun, matvælaiðnað og ferðaþjónustu.
Einnig verður fjallað um stöðu markaðarins, regluverk og atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við inngöngu á kanadíska markaðinn.
GrowTrade consulting mun jafnframt kynna þjónustu sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að í gegnum samstarf fyrirtækisins við Íslandsstofu.
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum. Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.
Vinsamlega skráið þátttöku hér.
Dagskrá:
- Tækifæri í lykilgreinum á kanadíska markaðnum
- Innsýn í regluverk og stöðuna í Kanada
- Atriði til að hafa í huga við inngöngu á markaðinn
- Þjónusta GrowTrade Consulting til íslenskra fyrirtækja

